Saturday, April 9, 2011

Pakki?

First thing's first. Mér lýdur mjog vel.

Ég fer aftur á móti ad sakna alls kins hluta. Tad maetti segja ad ég sakni Íslands í heild. Ég sakana einskis meira en annars... nema vatnsins og nammisins (?). Ég er basicly ad bidja einhvern um ad senda mér vatnsflosku :D Tad trúir mér enginn tegar ég segi ad óhreinsad vatn sé best. Svo hitti ég líka í dag sjálfbodalida sem er ad gera heimskort á ísskapinn sinn og bad mig um segul med stofunum "Ísland" og óg hugsadi ef ég er ad bidja fólk um ad senda mér vatn tá get ég alveg eins bedid tau um ad senda mér einn segul líka.

Annars hefur bréfid titt ekki skilad sér enn mamma og tad koma myndir brádum... tolvan er bara í vidgerd.

P.s. Ekki vera ad hafa mikid fyrir tví ad senda mér neitt og ég veit ekki hvernig tad er ad senda vokva.

Basicly ekki hafa mikid fyrir mér en ef einhver nennir tá eru tad nokkur orugg cool-points

10 comments:

  1. Passa svo bara að gleyma ekki íslenskunni :)

    Að líða er ekki með ufsíloni, alls kyns er það hins vegar :)

    Frá bært annars að heyra frá þér - endalaus áhugi á fréttum hér heima

    luv. mamma

    ReplyDelete
  2. Gaaaman að lesa bloggið þitt Álfur!

    ReplyDelete

  3. Gott að heyra að allt gangi vel. Skil vel þetta með vatnið. Var í K4 áðan og gat ekki séð betur en mamma þín væri að undirbúa "harða" sendingu, engann vökva. Annars i eða y - alveg óþarfi að vera að nöldra yfir svona smámunum. Var einu sinni með kennara sem setti öll y í fyrstu setninguna sem hann skirfaði á töfluna bara til að vera búin með kvótann og þurfa ekki að hugsa meira um það :)
    kv. Kristín

    ReplyDelete
  4. Frábært að heyra frá þér öðru hvoru ;) og gott að þú nýtur þess að vera til.
    Hlökkum samt mikið til að fara að sjá einhverjar myndir
    Þetta með íslenskuna er nú ekkert það mikilvægt, við erum öll svo góð í enskunni en held við höldum ekki uppi miklum samskiptum á spænskunni nema með google translate okkur til halds og trausts!

    ReplyDelete
  5. Ég er að spá í að stofna til ritdeilna hérna á blogginu þínu - finnst sko bara stóralvarlegt mál að eftir allt puðið okkar í MR-stafsetningunni þá séu ufsílon reglurnar fyrir bí um leið og komið er suður fyrir miðbaug :)

    Súkkí og lakkrís á leiðinni í pósti

    21,
    mamma

    ReplyDelete
  6. ...og segullinn, á það bara að vera einhver segull með ÍSLAND á?

    ReplyDelete
  7. Hahahaha, já mamma :D Madur aetti ad fara oftar svona sem skiptinemi. Tad gera allir allt fyrir mann

    ReplyDelete
  8. Sæll Álfur, gaman að lesa pistlana. Geri ráð fyrir að m og p sjái um að senda þér allt sem þú biður um. Ég hefði hins vegar mjög gaman af því að fá að sjá myndir úr skólanum, ef þú mátt taka myndir þar. Og ef einhver áhugi myndast fyrir Íslandi í skólanum þá getur Laugalækjarskóli ábyggilega tekið þátt í einhverskonar samskiptum.
    Allra bestu kveðjur,
    Jón Páll.

    ReplyDelete
  9. Gott að heyra frá þér Álfur minn, það hafa allir skilning á söknuði til ýmissa hluta, sérstaklega þegar erfitt er að nálgast þá. Ég yrði líka mjög glöð að sjá myndir, fékkstu ekki svo fína vél með þér út, eingöngu til að sjá okkur hinum fyrir skemmtun;)...segi nú bara svona...híhí
    Það má benda málfarsráðunautnum hér á síðunni að "frábært" er skrifað í einu orði;)
    Góðar kveðjur til úr Skerjó:)

    ReplyDelete