Wednesday, April 20, 2011

Páskar

Í dag var sídasti skóladagurinn fyrir páskafrí. aftur í skólann á mánudag :S Ég var enntá stilltur inn á íslensk páskafrí og var rosa spenntur alveg tangad til klukkan 12 í dag tegar ég fattadi ad ég er nú tegar búinn ad fá ad minnsta kosti 2 jafnlangar helgar og tessa. Mér skilst ad páskarnir séu mikilvaeg hátíd en tad á enn eftir ad koma í ljós og já, ég er nokkud viss um ad ég fái páskaegg.

Sem ég skrifa heyri ég varla mínar eigin hugsanir vegna trumanna sem skekja siestuna. Tad er yndislegt vedur med miklum raka og fallegum blossum :D

Ég vil óska MRingum til hamingju med sigurinn og kennslulok, ég á enn eftir 3 mánudi í vetrarfrí...

4 comments:


  1. Voðalega er þetta lélegt páskafrí, bara 4 dagar :)
    Héðan allt gott að frétta. Ég var svo heppinn að fá pláss á Reykjalundi - byrjaði á mánudaginn og verð þar í endurhæfingu næstu 4 vikurnar. Mjög skemmtilegt prógram sem ég er í, hjól, göngur, tæki, sund og fræðsla.
    Rigning hér líka en aðeins kaldara en hjá þér og svo hefur snjóað síðustu daga. Sumardagurinn fyrsti er á morgun og eins og alltaf er spáð rigningu um allt land.
    Gleðilegt sumar og gleðilega páska.
    Kristín

    ReplyDelete
  2. Takk fyrir þennan ljóðræna pistil kæri sonur. Vona að súkkulaðið skili sér til þín fljótlega þ.a. þú getir gert bragðsamanburð við argentínska páskaeggið. Argentískt páskaegg á skilið að vera fest á mynd :).
    Pabbi og Baldvin eru að spá í að fara austur í hjólhýsi með Kristínu um páskana - ef eitthvað dregur úr rigningunni. Rigningin hér er að venju án ljósasjóvs - get ímyndað mér að það sé gaman í þinni rigningu.
    Hjartans kveðjur og njóttu stutta páskafrísins,
    mamma

    ReplyDelete
  3. Ég er alltaf að læra ný spænsk orð á AFS Reconquista síðunni

    FELICES PASCUAS PARA TODOS - skilst að þetta þýði gleðilega páska allir :)

    ReplyDelete
  4. Hæ ömmustrákur, mitt páskafrí hófst kl. 12 á hádegi í dag - páskadag, þegar é gkom heim frá páskemessunni. Það er búið að vera mikið að undanfarna daga eins og vera ber hjá presti um hátíðisdaga. Hér hefur verið bjart veður, mikil sól en hvasst, græni liturinn keppist við að ná yfirhöndinni. Ein ær borin í fyrradag með tvö lömb. Þú færð meiri "lambafréttir" seinna. Annars allt gott hérna megin á hnettinum. Bestu kveðjur. Lára amma

    ReplyDelete